MótahönnunTil að frumhönnun vindmylluhússins, sem unnin var af verkfræðingum Siemens, kæmist sem fyrst á markað, var Driftwood ehf beðið um að aðstoða við mótagerðina. Við teiknuðum mótin og unnum með mótaframleiðandanum í Danmörku, þar til framleiðsla hófst í byrjun árs 2015.
|
Smáatriðin í lagiVindmyllur þurfa að þola öll veður, mikið vindálag, úrkomu og miklar hitasveiflur. Allar brúnir, samskeyti og samsetningar þurfa því að vera fyrsta flokks. Smávægilegur raki sem kemst inn í mylluna, getur skemmt rafbúnað hennar á löngum tíma. Við aðstoðuðum við að gera mylluna eins þétta og hægt var.
|
VerkefnaskilAð miðla framleiðsluleiðbeiningum til framleiðanda á skýran hátt, til að minnka hættuna á mistökum við framleiðsluna, er okkar sérgrein. Tæknilega flóknar útskýringar eða einfaldar samsetningaleiðbeiningar eru því alltaf settar fram eins myndrænt og hægt er.
|